Valdir bitar úr eplinu að vestan...

 
 

 

  Email: Úlf & Herdís

  Netrúnturinn

  Myndaalbúmið
  (sendið email til að
   fá aðgang)

 

 

   
þriðjudagur, desember 02, 2008
 
Aragrúi nóvember-mynda nú í albúmi

sunnudagur, nóvember 23, 2008
 
Sunnudagur til sælu II ?


Hér sit ég að lesa. Eða svona næstum því. Er í hagfræði-tölvuverinu, sem er á fimmtu hæð í leiðinlegustu byggingunni á campus. Og fimmta hæðin er asnalegasta hæðin. Mér dettur alltaf í hug hæð 7 og 1/2 í "Being John Malkovich" þegar ég kem hingað. Hér er lágt til lofts og litlir kjallaragluggar - þrátt fyrir að maður sé á fimmtu hæð. Hér er 40 stiga hiti þegar kalt er úti, en frost þegar það er heitt úti. Þar að auki er andrúmsloftið hérna frekar bæklað. Ég kem hingað bara af illri nauðsyn og held að ég ætti nú bara að halda því áfram sem ég er að gera - til að sleppa héðan út sem fyrst:)

knús heim. xxx.


sunnudagur, nóvember 16, 2008
 
3L - myndir fyrir mömmu

Hér koma myndir af nýju íbúðinni. Það vantar kannski ennþá einhver huggulegheit í hana, en við erum ekkert smá ánægð hérna. Ég hefði ekki trúað því fyrirfram hvað þetta er mikill munur. Frábært að hafa meira pláss, en mér finnst muna mestu um gluggana:) Sem snúa út, en ekki inn í port! Við fáum þ.a.l. dagsbirtu hingað inn, og svo er frábært að vera niðri á 3. hæð og geta horft út á mannlífið...
En jæja - fótos:

Forstofan...aðstaða til pílukasts er ekki alveg jafngóð og í gömlu;)



Eldhúskrókurinn



Stofan






Svefnherbergið



Eddurúm



Hitt herbergið er skrifstofa....



og leikherbergi



Og svo útsýnið:)





Og að lokum nokkrar af skottunni fallegu...

...í símanum



....skítug að tjilla í gamla baðbalanum sínum



...með stubbana



 
Sunnudagur til sælu


Hér sit ég að lesa. Stundum er gott að fara á gömul og góð bókasöfn til að finna lærdómsandann. En bara stutt í dag. Því nú ætla ég heim að gera eitthvað huggulegt með Eddunni. Róló, og fara svo heim og henda brauði inn í ofn...með tómatsósu, lauki og osti. Búa til heitt kakó. Ætli krullan kunni að meta það?

Mútta mín, ég lofa nokkrum myndum af íbúðinni í kvöld, og jafnvel 1-2 myndum af skottu. Ég er ekki að standa mig í þessu. Knús til Íslands. HS.


þriðjudagur, nóvember 04, 2008
 
Til hamingju Bandaríkin og heimurinn allur.

Fyrir um hálftíma síðan var Obama endanlega tilkynntur sem næsti forseti Bandaríkjanna. Ég var staddur á Times Square og það ætlaði allt um koll að keyra. Mannfjöldinn hljóp út á göturnar, öll umferð stöðvaðist, allir öskruðu í geðshræringu og lögreglan réð ekki neitt við neitt. Allar símalínur lágu niðri og það var ekki hægt að heyra annað en öskur og gól.

Er núna kominn heim á upper west side og hér er campusinn troðfullur af fólki. Út um gluggann má heyra stanslaus hróp, ekki bara stöku sinnum úr nokkrum manneskjum, heldur stanslaus, gegnumgangandi gól og læti. Bílflautur og lúðrar. Ég hef aldrei séð Bandaríkjamenn tapa sér svona gjörsamlega. Það er bókstaflega óstöðvandi og gegnumgangandi öskur hverja einustu sekúnda sem bergmálar milli allra bygginga (í alvöru, gargið er algjörlega samfellt!). Hér ríkir hreint og klárt stríðsástand.

Á leið heim í subway-num voru allir að spjalla saman, fólk faðmaðist og jafnvel grét! (venjulega horfa allir á tær sér). Miðaldra kona öskraði hástöfum: "I have not been as proud in a long time - no I have never been as proud ever! - to be an American!"

Hefði aldrei trúað því að ég myndi sjá annað eins í Bandaríkjunum, land þar sem fólk sleppir sér sjaldan og lætur tilfinningarnar streyma fram með þessum hætti.

Meira að segja fréttafólkið á sjónvarpsskjánum grætur!

Þjóðin er í algjörri geðshræringu og bíður núna eftir að hetjan kemur á svið og heldur sína sigurræðu.

Ég hef aldrei upplifað annað eins - þetta er ótrúlegt augnablik.

laugardagur, nóvember 01, 2008
 
Nýjar október myndir í albúmi.

mánudagur, október 27, 2008
 
FYI

Við erum flutt í aðra íbúð í sömu blokk (íbúð 3L) og erum hætt með gamla símann okkar - nýja símanúmerið (Skype sími) er +1 213-985-2930.

Set inn nýjar myndir næstu helgi.

þriðjudagur, september 30, 2008
 
September-myndir komnar í albúm.

þriðjudagur, september 16, 2008
 
1 árs skotta

Fyrsti afmælisdagurinn hennar Eddu var á sunnudaginn. Veðrið var svo gott að afmælispartýinu var bara rúllað út í garð. Þetta var fínasti dagur, og ég held að Edda sé bara sátt við að vera orðin árinu eldri...en núll.

Hún var í 1 árs skoðun í dag, er orðin 76 cm og 10.6 kg. Fékk 2 sprautur og varð mjög móðguð - en ekki lengi að jafna sig.

Knús og kossar. HS.











þriðjudagur, september 09, 2008
 
Þann 11. september munu Obama og McCain mæta hingað í Columbia og halda erindi í minningu atburðanna fyrir 7 árum.

Um tveimur vikum seinna kemur önnur stórstjarna og þungavigtarmaður hingað til Columbia.

Allt að gerast.
 




This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.